22.05.1942
Sameinað þing: 20. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í D-deild Alþingistíðinda. (2648)

151. mál, ríkisprentsmiðjan Gutenberg

Forseti (GSv):

Hér er ekki um að ræða nein undanbrögð hjá mér sem forseta, því að það var ákveðið í gær að ljúka störfum nú, áður en ég heyrði um þáltill. hv. þm. Str. Ef ætti að telja fram að meiri hl., hverjir þm. hafa óskað þess, að störfum gæti orðið lokið, eru þeir jafnt úr Framsfl. og öðrum flokkum. Enda sker ég ekki úr hér, heldur legg málið undir dóm þingsins.