09.03.1942
Neðri deild: 15. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (411)
23. mál, skipti Laxárdals og Ymjabergs og 3/4 hlutum Stóru-Sandvíkur
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Ég álít nokkrir vandkvæði á, að landbn. geti upplýst, hvers virði jarðirnar eru, eftir að allar kringumstæður eru gerbreyttar. Eins og sjá má af þessu frv., þá er hér ekki um sölu, heldur um skipti að ræða, og hv. þm. Dal. telur það eitt og hið sama, og má ef til vill segja, að það sé það að nokkru leyti. Viðvíkjandi sveitarfélaginu og ábúendunum á jörðunum er það að segja, að ég hygg enga breyt. geta orðið á því, og geri ég ráð fyrir, að þeir fái að búa á jörðunum áfram og ekki verði lagður neinn steinn í götu þeirra af hinum nýju eigendum. Ég hef stuðzt við opinberar skýrslur. hvað verðmæti jarðanna snertir. Lýsingin á þeim er úr fasteignamatinu, bæði gamla og nýja, og ég sé á nýja matinu, að verðið á þeim hefur ekki hækkað: Af jörðunum báðum til samans eru um 200 hestar af töðu og 100–150 hestar úthey, sem hver jörð gefur af sér. Þó er þetta ekki svona mikið núna, en ef allt væri nýtt, gæti það komizt upp í þetta. Eins og sést á þessum skýrslum, þá eru þetta fremur lítil býli, og matsverðið gefur til kynna, hvernig jarðirnar eru. Annars hef ég ekkert á móti því, að landbn. kynni sér þetta mál nánar.
Hv. 8. landsk. gerði aths. út af því, að ekl,i væri tekið fram, að þetta væri Stóra-Sandvík 1. Stóra-Sandvík II er allt önnur jörð, og hygg ég, að það sjáist bezt á fasteignamatinu. (EE: Hitt er fastari og öruggari regla.) Hvað áhrærir Stóru-Sandvík, þá tel ,ég vel séð fyrir hagsmunum bæði sveitarfélags og ábúenda. Ég mun svo ekki fjölyrða um þetta, því að ég tel það fram komið, sem máli skiptir.