23.03.1942
Neðri deild: 24. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í C-deild Alþingistíðinda. (474)
52. mál, skipun prestakalla
*Flm. (Steingrímur Steinþórsson):
Þetta frv., sem við þm. Skagf. flytjum á þskj. 87, er ekki fyrirferðarmikið. Það er um þá breyt. á prestakallaskipun, að Viðvíkurprestakalli verði skipt í tvö prestaköll, þ.e.a.s., að Hólasókn verði tekin út úr og gerð sérstakt prestakall. Rök þau, sem að þessu hníga, eru færð fram í grg. frv. Þarf engum orðum um það að fara. Allir vita, hvílíkan þátt Hólar eiga í kristnisögu landsins frá fyrstu tíð. Þar er einhver veglegasta kirkja þessa lands, sem hefur verið unnið að undanfarin ár að búa sem bezt, og er nú að mestu lokið þeirri aðgerð, þó að enn þá sé nokkuð ógert. Það er eindreginn vilji safnaðarins að fá þarna sérstakt prestakall, fá dómkirkjuprest að Hólum. Af öllum þessum ástæðum er það, að við leyfum okkur að bera þetta frv. fram. Styðjumst við við eindreginn vilja þeirra manna, sem við þetta eiga að búa fyrir norðan. Þetta mál hefur einnig verið borið undir biskup landsins, og er hann þessu mjög fylgjandi. Einnig vil ég geta þess, að prófastur Skagafjarðarprófastsdæmis hefur mjög eindregið óskað eftir, að þessi breyt. verði gerð. Er það m. a. fyrir eindregin tilmæli frá honum. að við þm. Skagf. berum þetta frv. fram.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð að svo stöddu, en leyfi mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.