30.04.1942
Neðri deild: 45. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í C-deild Alþingistíðinda. (539)

113. mál, bifreiðalög

Finnur Jónsson:

Allshn. gat ekki komið sér saman um að flytja þetta mál. Meiri hl. hennar leit svo á, að eins og umferð væri háttað nú, þyrfti að gera miklar kröfur til færni bifreiðarstjóra, og væri því ekki rétt að breyta þessu ákvæði. Eins og þm. vita, er orðin margföld hætta við það, sem var, á vegum hér, og n. telur ekki rétt að gera neitt, sem yki þá hættu, eins og verða mundi við samþykkt þessa frv.