30.04.1942
Neðri deild: 45. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í C-deild Alþingistíðinda. (547)

114. mál, eignarnám húseignarinnar Austurstræti 5 í Reykjavík

Haraldur Guðmundsson:

Ég ætla ekki að gerast til þess að svo stöddu að mæla gegn þessu frv. En mér finnst það harla undarlegt, að eignarnámi þurfi að beita til þess að færa lóðina milli þessara opinberu stofnana, sem báðar heyra undir sama ráðherra. Ég vil ekki að óreyndu trúa öðru en hægt sé með góðum vilja að kippa málinu í lag án þess.