07.05.1942
Neðri deild: 53. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (593)

124. mál, virkjun vatnsfallannaí botni Arnarfjarðar

*Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hér er um að ræða hlutafélag, sem ætlazt er til, að stofnað verði til virkjunarinnar, en ætlazt er til, að þar hafi forgöngu viðkomandi hreppsfélög og kauptún og bæjarfélög, sem eru á þessu svæði, en ef ekki safnast nægilegt hlutafé með því móti, þá að einstökum mönnum sé gefinn kostur á hlutabréfakaupum, en slíkt mun liggja fyrir, áður en næsta þing kemur saman.