20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (677)

137. mál, hreppamörk Borgar- og Stafholtstungnahreppa o.fl.

*Frsm. (Bergur Jónsson): Hér er um að ræða lítils háttar breyt. á hreppamörkum. Þetta var samþ. á sýslufundi Mýrasýslu með 8:1 atkv. Land það, er hér um ræðir, er í eign Borgarhrepps, og er þess vegna ekki nema eðlilegt, að sá hreppur vilji fá landið fært yfir á sig. Allshn. leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt.