20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (682)

137. mál, hreppamörk Borgar- og Stafholtstungnahreppa o.fl.

*Jón Pálmason:

Ég á hér ekki neinna hagsmuna að gæta, eins og menn vita, en ég blanda mér í þetta aðeins vegna þess, að slík mál sem þessi eru oft mikil hitamál milli hreppa, og því tel ég mjög athugavert að breyta hreppamörkum, þegar svo stendur á sem hér, að ekki liggja fullljósar upplýsingar fyrir um málið. Gæti það hæglega skapað fordæmi síðar. Ég tel því réttara að geyma afgreiðslu málsins til næsta þings. þegar greinilegri upplýsingar hafa fengizt.