20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (687)

137. mál, hreppamörk Borgar- og Stafholtstungnahreppa o.fl.

*Jón Pálmason:

Ég skil vel afstöðu hv. flm. til málsins, en viðvíkjandi því, sem hv. þm. Barð. tók fram, að oft hefðu verið samþ. hér mál líks efnis og þetta, þó að menn hafi verið ósammála um þau. þá finnst mér það ekkert mæla með framgangi þessa máls, því að hér eru aðeins fyrir hendi upplýsingar frá öðrum aðilanum.