07.04.1942
Efri deild: 27. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (810)

68. mál, tollskrá o.fl.

Flm. (Erlendur Þorsteinsson):

Ég vil þakka hv. 11. landsk. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið í sambandi við brezka samninginn. En ég vildi leyfa mér að spyrja hv. 11. landsk. hvort tollur af vefnaðarvöru hefur ekki verið innheimtur á s.l. ári. eins og samningurinn væri í fullu gildi.

Annars geri ég ráð fyrir því, að fjhn. hafi um þetta viðræður við ráðuneytið, það hefur alltaf verið þannig, þegar fjhn. hefur haft til athugunar breyt. á tollskránni, og ég geri ekki ráð fyrir, að hún bregði út af þeim vana nú.