24.03.1942
Neðri deild: 25. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (847)
33. mál, sala á prestsmötu
*Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar, og eins og nál. hennar ber með sér, leggur hún til, að frv. verði samþ. með litlum breyt. Það er breytt orðalagi og fært til betra máls, en þar er í raun og veru ekki um efnisbreyt. á frv. að ræða. Brtt. er í því fólgin, að fyrri málsgr. frvgr. orðist þannig:
„Andvirði prestsmötu, sem þegar er seld eða seld verður, renni til kirkna þess prestakalls, sem naut hennar áður, og skiptist jafnt milli þeirra.“
Og í öðru lagi er till. um, að aftan við frvgr. komi ný gr., sem verði 2. gr., svo hljóðandi: „Lög þessi öðlast þegar gildi:
Fjhn. leit svo á, að frv. væri í alla staði réttmætt, að það væri rétt, að þetta, sem kirkjunum var ætlað og var eign þeirra frá upphafi, rynni til þeirra, svo að þegar það væri selt, gengi það allt til kirknanna, sem nutu þess.