02.05.1942
Efri deild: 46. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í B-deild Alþingistíðinda. (940)

120. mál, gærumat

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég ætla ekki á nokkurn hátt að fara að gagnrýna þetta frv., en aðeins spyrjast fyrir um það, að hverju leyti hér hefur opnazt ný leið um sölu gæranna og fyrir hvaða verð þær hafi verið seldar. (Viðskmrh.: Það hefur verið gerður sölusamningur um helming af gærunum fyrir kr. 2.40 kg fob.) Ég gerði þessa fyrirspurn aðeins til fróðleiks.