02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í D-deild Alþingistíðinda. (1004)

13. mál, vöru- og farþegaflutningar með ströndum fram og flugleiðis

Forseti (GSv) :

Það er hér fram komin skrifl. brtt. En mér skilst, þar sem þetta er fyrri umr. um þáltill., þá geti brtt. yfirleitt, sem fram kunna að koma, að skaðlausu beðið til síðari umr., og þá yrðu þær prentaðar og þeim útbýtt, og fengist með því móti betra færi á því fyrir hv. þm. að athuga slíkar viðbætur. Býst ég við, að hv. þm. geti orðið mér sammála um þetta.