04.09.1942
Sameinað þing: 14. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (1066)
19. mál, raforkumál
Bjarni Bjarnason:
Mér skildist á hv. síðasta ræðumanni, 7. landsk., að till. sú, sem hér liggur fyrir til umr., bindi Alþ. um stórkostleg fjárútlát, að hann telur hundruð millj. kr. En ég hygg, að það sé ljóst, að þáltill. bindur Alþ. ekki að öðru leyti heldur en því að kjósa 5 manna mþn. til þess að athuga, á hvern hátt megi afla fjár til þess að koma því verki í framkvæmd, sem um ræðir í till. Og enn fremur að greiða kostnað, sem af slíku nefndarstarfi leiðir, úr ríkissjóði. — Síðari hluti till. er um það, að rannsaka skuli virkjunarskilyrði fallvatna í landinu, og mun það vera algengt, að slíkur kostnaður sé afgreiddur frá Alþ. í tillöguformi, enda hafa farið fram umr. um þessa þáltill. að réttri venju. Hygg ég, að ekki þurfi fyrir hönd okkar flm. að taka fleira fram viðvíkjandi þeim þætti í ræðu hv. þm., sem sneri að brtt. Það er að sjálfsögðu á valdi hv. þm., hvort þeir samþykkja brtt. eða fella þær. Ég held, að það sé ekki neitt í þessum brtt., sem varðar efnishlið málsins, og skal ég því ekki hafa þessi orð fleiri.