04.09.1942
Sameinað þing: 14. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í D-deild Alþingistíðinda. (1148)

33. mál, drykkjumannahæli

Jörundur Brynjólfsson:

Ég vil gjarnan, að þessu máli sé sinnt, og hvað afgreiðslu þess snertir, vil ég mega vænta þess, að málið verði undirbúið eftir því, sem föng eru á, fyrir næsta þing, og segi því já.