02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (1196)
18. mál, undanþága frá greiðslu á benzínskatti
Ingólfur Jónsson:
Aðeins örfá orð út af því, sem hv. þm. V.-Sk. sagði, að ég hefði ekki viljað gerast meðflm. að till. hans, en mér er óhætt að segja það, að mér hefur ekki verið boðið að vera meðflm. að till. þeirri, er hann stendur að. Hann segist og hafa fengið fulla reynslu fyrir því 1932, að ókleift væri að létta af benzínskattinum. Þá var það vitanlega eðlilegt, að hv. þm. hefði sagt hinum yngri þm. sannleikann í málinu. Hann sagði það enn fremur, að till. okkar væri ekki flutt af þm. frá Suðurlandi, heldur uppbótarþm. Sjálfstfl., en nú vill einmitt svo vel til, að þessir þm., sem hann er að tala um, eru allir af Suðurlandi og búsettir þar. Annars er það sízt af öllu heppilegt til að afla einu máli fylgis, að vera að telja öll tormerki á, að það nái fram að ganga. Þótt brtt. hafi komið fram við þáltill. þessa, þykir mér vafasamt, að þær séu réttmætar, þar sem um töluverðan aðstöðumun til vöruflutninga á landi í hinum einstöku byggðarlögum þessa lands er að ræða.
Þá var hv. 1. þm. N.-M. að varpa fram þeirri spurningu, hvernig ætti að styrkja þá bændur til vöruflutninga, er flyttu þungavöru sína á klökkum. Hv. þm. hlýtur að sjá, að þessi þáltill. getur ekki náð til þeirra, er flytja vörur sínar á hestum, og þyrfti, ef ætlazt yrði til að styrkja þá til vöruflutninga, að bera fram sérstaka till., er miðaðist við þá bændur, og mætti búast við, að þessi hv. þm. yrði þá fyrstur manna til að bera fram slíka till.