03.09.1942
Sameinað þing: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (1345)

61. mál, símalagningar í Barðastrandarsýslu

Flm. (Gísli Jónsson) :

Eins og grg. till. ber með sér, var þetta samþ. í símal. 1935 ásamt öðrum símalagningum, en þessar línur hafa ekki enn þá verið lagðar, enda þótt flestar hinar hafi verið lagðar, ásamt mörgum öðrum línum, sem ekki voru þá komnar í símal. Ég vona, að hæstv. Alþ. fallist á, að þetta verði gert hið fyrsta og afgreiði þetta, án þess að það fari til n.