21.08.1942
Neðri deild: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (164)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Þetta mál hefur verið rætt mjög mikið í Ed. auk þess, sem um það voru efnislegar umr. í útvarpinu s. l. þriðjudag og miðvikudag. Það er því ósk ríkisstj., að afgreiðslu málsins verði hraðað og ekki gefið tilefni til umr. vegna atvinnurekenda og vinnuþega, því að þó að l. séu ekki efnislega til fyrirstöðu samningum, þá eru þau það að forminu til.