21.08.1942
Neðri deild: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Sigfús Sigurhjartarson:

Ég hef engu við að bæta það, sem hæstv. fjmrh. og hv. þm. Ísaf. sögðu. Ég er alveg sammála hv. þm. Ísaf. um, að með gerðardómsl. voru verkalýðsfélögin svipt rétti til að segja upp samningum, og vil undirstrika það, ef till. hv. þm. Borgf. verður samþ., þá hefur það í för með sér auknar vinnudeilur í landinu. Allir vilja nú vinnufrið, og reynt er á allan hátt að komast að samkomulagi. Þess vegna mun ég greiða atkv. gegn þessari brtt.