21.08.1942
Neðri deild: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Öllum hv. þm. hlýtur að vera það ljóst, að eins og málið stendur nú, er ekki hægt að ljúka umr. strax, þar sem rétt á eftir á að verða lokaður fundur, þar sem þarf að ræða mjög þýðingarmikið mál. Óska ég því eindregið, að forseti noti sér það vald, er hann hefur, til þess að fresta umr. um þetta mál, og taki það út af dagskrá.