21.08.1942
Neðri deild: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (181)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Forseti (JPálm) :

Það eru 3 hv. þm. hér á mælendaskrá, en samkvæmt ósk hæstv. forsrh. (EystJ: Ég hef rétt á því að fá að tala hér nokkur orð um þingsköp.) verður málið tekið út af dagskrá og fundi slitið. (EystJ: Ætlar forseti að neita mér um að tala nokkur orð um þingsköp?) Já. (EystJ: Ég vil fá að heyra það aftur. Ætlar forseti að neita mér um að tala um þingsköp?) Ef hv. þm. er mjög harður við þá ósk sína, þá skal hann fá orðið.