04.08.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (20)

Kosning til efri deildar

Jörundur Brynjólfsson:

Ég býst við, að hv. þm. Hafnf. þykist hafa fundið hárfína röksemd. En erfitt mun verða að gera brot úr manni að heilum manni í hverju tilfelli, sem um slíkt er að ræða. Ég vil spyrja, hvort hann mótmæli því, ef þetta eina atkv. framsóknarmanna, sem nú vantar, hefði verið til staðar, að Framsfl. hefði fengið 7 menn kjörna, en hinn flokkurinn einum færri en nú er talað um.