04.08.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Kosning til efri deildar

Forseti (GSv) :

Það hefur verið óskað úrskurðar um þessa kosningu, og verður ekki undan því skorazt. Til þess verður að taka frest, eins og eðlilegt er, þegar um vafaatriði getur verið að ræða. Með því að klukkan er nú nálega 8, mun ég taka frestinn til kl. 9, og kemur Sþ. þá aftur saman.