31.08.1942
Efri deild: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (353)

28. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (ÞÞ) :

Mér hefur borizt skrifl. brtt. frá hv. þm. Barð. (GJ) við brtt. á þskj. 161 við ákvæði til bráðabirgða, um að orðin: „og því sé ekki mótmælt af frambjóðendum eða umboðsmönnum þeirra“ í a-lið falli burt. — Vil ég leita afbrigða um, að till verði tekin til meðferðar á fundinum.