04.08.1942
Neðri deild: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

Sætaskipun

Pétur Ottesen:

Ég vil óska þess, að hlutað verði um sæti á venjulegan hátt. Það er gert ráð fyrir því í þingsköpunum, og ég held, ef óskir koma fram um það, að þá sé ekki hægt að hafa á því aðra skipan.