04.08.1942
Neðri deild: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

Sætaskipun

Gísli Sveinsson:

Í þessu tilfelli sem öðrum má gera afbrigði frá þingsköpum. Það er rétt, að í þingsköpum segir, að hluta skuli um sæti, en samkv. 64. gr. geta afbrigði náð fram að ganga með tilskildum meiri hl.