04.08.1942
Neðri deild: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

Sætaskipun

Forseti (EmJ) :

Ég vil benda hv. þm. á, að í 7. gr. segir beinlínis, að hluta skuli um sæti, nema þingflokkar komi sér saman um að sitja eftir flokkum. En það hefur áður strandað á því að ná þessu samkomulagi. Þó mætti reyna það nú og hafa fundarhlé, og mun ég því hér með fresta fundi í 10 mínútur, til þess að flokkarnir geti reynt samkomulag.

Eftir stutt hlé var fundinum fram haldið.