20.08.1942
Neðri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (475)

51. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Jón Pálmason:

Þegar ég sá þessa brtt. á þskj. 84 frá sjútvn., datt mér í hug, hvort það mundi vera ætlunin, að þessi breyting ætti að þýða, að reisa skyldi verksmiðjurnar í þeirri röð, sem í till. stendur. Nú hefur því verið neitað af frsm., og get ég þá látið niður falla frekari andmæli gegn þessari brtt.