27.08.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (650)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

forseti (GSv):

Ég skal geta þess, áður en gengið er til dagskrár, að það er tilgangurinn, að sem fyrst verði lokið þeim málum, sem fyrir liggja. Það líður nú óðum að þinglokum, og þarf að hraða málunum, ef þeim á að verða lokið í tæka tíð, en eins og hv. þm. vita, hafa ýmsar tafir hamlað afgreiðslu mála hér í Sþ. Nú er það æskilegt, að þessi mál verði ekki mikið rædd, til þess að hægt sé að koma þeim áfram á þeim tíma, sem er til umráða.