02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (774)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Jónas Jónsson:

Ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. forseta að því, hv ort hann sæi sér ekki fært að taka sem fyrst fyrir þáltill. á þskj. 19, um raforkumál, þar sem sérstaklega ríður á að afgr. þessa till. vegna frv. um raforkusjóð, sem er til umr. í Ed. og hangir þar svo að segja í lausu lofti á meðan ekki er hægt að afgr. þetta mál á —þskj. 19 í þessari hv. d. Vil ég benda hæstv. forseta á, að öll málin að einu undanskildu, sem ofar eru á dagskránni en þetta mál, munu síðar vera framkomin, og gæti því þessi þál. orðið næstfyrst á dagskránni.