18.08.1942
Efri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (779)
49. mál, bændaskóli Suðurlands
Gísli Jónsson:
Ég skal vera stuttorður. Ég get ekki látið hjá líða að minna hv. þm. Str., fyrrv. landbrh., á það, að það er skoðun hans, að hér megi ekki ræða landbúnaðarmál. Hver er það, sem hefur flutt óþarfa málalengingar inn í þessa hv. d. og inn í þingið? Það er fyrst og fremst Framsfl. Hér liggur fyrir langt nál. frá hv. þm. Str., sem er ómerkilegt og ekkert nema málalengingar, og geri ég þó ráð fyrir, að ræða hans um það mál muni þó verða miklu lengri og ómerkilegri heldur en nokkurn tíma sú langloka, sem þetta nál. er. Það situr því sízt á honum að vera að vita aðra fyrir óþarfa mál og óþarfa ræður hér á Alþ.