20.08.1942
Efri deild: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (805)
54. mál, vegagerð
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Í sambandi við ræðu hv. þm. S.-Þ. vil ég leyfa mér að gera þá fyrirspurn til hv. þm., hvort þessar vegabætur séu að hans dómi svo aðkallandi, að nauðsynlegt sé til sérstakra ráðstafana umfram það, sem er á valdi vegamálastjóra að verja til þeirra af viðhaldsfé, að það eigi að ganga fyrir því að koma blómlegum sveitum í samband við vegakerfi landsins, en eins og kunnugt er, hafa ýmsar slíkar sveitir orðið mjög afskiptar um vegasamband og nauðsynlegustu vegaframkvæmdir þar látnar sitja á hakanum, á meðan bornar hafa verið fram og samþykktar till. hér á þingi, meðal annars af þessum hv. þm., um reiðvegi og gangvegi meðfram aðalvegunum.