28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (814)

Þingfylgi ríkisstjórnarinnar

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Út af þessari yfirlýsingu hv. form. Framsfl. vil ég í fyrsta lagi endurtaka fyrri yfirlýsingu um það, að ríkisstj. hefur ekki að baki sér neinn stuðningsflokk nema Sjálfstfl., og í öðru lagi hefur stj. ekki búizt við, að Framsfl. færi að styðja hana. Hér er talað um stuðningsflokka stj., sem hafa engir verið og eru engir. Öðru get ég engu svarað þessari yfirlýsingu.