28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

Þingfylgi ríkisstjórnarinnar

Jónas Jónsson:

Það er ekki hlutverk mitt að reyna að skilja þau kærleiksbönd, sem hafa bundið Sósfl. og Alþfl. við stj. undanfarna mánuði, en þó hygg ég, að sú athöfn, sem gerðist í Ed. í gær, hafi sýnt, að einhverjir þræðir hafi slitnað, sem áður voru þar á milli, því að ef enginn slíkur stuðningur hefði verið af hendi þessara flokka, þá hefðu þeir ekkert haft að tilkynna, en það, sem þeir tilkynntu, var uppsögn á friði og griðum af einhverju tagi. Ég segi þetta af því, að hæstv. ráðh. vill gagnrýna, að ég skyldi vera að tala um stuðningsflokka stj.