08.09.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

Menntamálaráð

Haraldur Guðmundsson:

Ég sé ekki ástæðu til að fresta þessum kosningum, sem lög mæla fyrir um, að fram skuli fara á þessu þingi. Það er að vísu rétt, að annað eins hefur skeð í samþykktum Alþingis eins og að fresta alþingiskosningum, en þær samþykktir voru bundnar ríkari böndum, og er því mikill skilsmunur á því og þessu, sem hér um ræðir.