07.08.1942
Sameinað þing: 3. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (842)

2. mál, söluverð á síldarmjöli til fóðurbætis

Atvmrh. (Magnús Jónason) :

Af því að hér liggur fyrir till. til þál um innflutning erlendra fóðurvara og rætt hefur verið um það spursmál nánar, þá tek ég fram, að ég mun ekki fara mikið út í það mál að svo komnu, en get þess í sambandi við ræðu hv. þm. Str., svo að það komi í þingtíðindum með þessu máli, að það hefur þegar verið hugsað fyrir því að flytja til landsins fóðurbæti og séð fyrir skiprúmi til þess.