20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (857)
2. mál, söluverð á síldarmjöli til fóðurbætis
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Ég held, að það geti tæplega verið rétt að samþ. brtt. hv. þm. Ísaf., því að hún getur valdið misskilningi frekar en hitt. Meining hans í till. um verðið virðist vera þetta : Að það er kunnugt, eftir því, sem ég bezt veit, að það er nokkurt magn af síldarmjöli, sem selt er fyrir hátt verð, og tilgangurinn með till. er sá, að það, sem selt verður til fóðurbætis, þurfi ekki að koma undir þetta hæsta verð. En hins vegar, ef það er svo, að þetta verð, sem um er samið, verður hærra en yfirleitt má gera ráð fyrir, að fáist fyrir síldarmjölið, þá er augljóst, að bað getur valdið deilum, hvað er markaðsverð, og eins þó að till. hv. þm. Ísaf. verði samþ. Þess vegna held ég, að það sé rétt að halda sig við aðaltill. eins og hún er.