25.08.1942
Sameinað þing: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í D-deild Alþingistíðinda. (919)

63. mál, húsnæði handa alþingismönnum

forseti (GSv) :

Ég hafði leyft mér að boða til þessa fundar í dag og hef tekið á dagskrá nokkur af þeim mörgu málum, er fyrir Sþ. liggja. Um þessi 4 mál, sem á dagskrá eru, hefur náðst samkomulag í öllum flokkum, og væntanlega mun ekki þörf langra umr. um þau.

En nú verður þessum fundi slitið samkvæmt ósk stj., vegna þess m. a., að um þetta leyti eiga að hefjast áríðandi flokksfundir. Málin eru því tekin út af dagskrá og fundi slitið.