25.08.1942
Sameinað þing: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (921)

63. mál, húsnæði handa alþingismönnum

Forseti (GSv) :

Ég get að vísu fallizt á, að afgreiða megi 1. mál (kosning þingfararkaupsnefndar), ef flokkarnir hafa tilbúna lista, og 4. mál (húsnæði handa alþm.), hvernig ræða skuli. Getur það orkað tvímælis, hvort það mál á að fara til fjvn. eða ekki. — Verður þá gengið til dagskrár og tekið fyrir 4. mál, till. til þál. um húsnæði handa alþm.