17.08.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (955)

8. mál, úthlutun bifreiða

Forseti (GSv) :

Það er hreinn misskilningur hv. 1. þm. Rang., að till. sé tafin af vilja. Ég er einn af þeim, sem geta haft engu minni áhuga á að hraða henni en hann. Hæstv. ríkisstj., sem enn er af sérstökum ástæðum ókomin á fund, mun, er hún kemur, geta veitt upplýsingar um, hvað heimildir tefur, ef þær eru ekki þegar tilbúnar, og hvort eigi verði hægt að taka till. fyrir á næsta fundi. Annars mun eigi ástæða til að ræða þetta nú frekar.