01.09.1942
Sameinað þing: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (972)
8. mál, úthlutun bifreiða
Sigfús Sigurhjartarson:
Ég skal taka fram, að það er alveg rétt, að hv. 1. þm. Árn. hafi beðið hv. 2. þm. Skagf. að mæta á fundi. En það er líka rétt, að hann hafði ekki umboð frá flokknum og var ekki samþ. af n. sem nm. Ég leit svo á, — og hygg aðrir nm. hafi gert það einnig —, að hann kæmi til að skýra málið sem flm. Það var ekki um það talað á nefndarfundunum, hvort hann mundi hafa atkvæðisrétt eða ekki, og sjálfur lét hann í ljós, að hann hefði ekki óskað eftir atkvæðisrétti.