13.04.1943
Efri deild: 98. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (1030)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. — Ég vil leyfa mér að lýsa yfir, að mér er með öllu ókunnugt um till. þá, sem síðasti hv. ræðumaður talaði um. Hefur hún ekki verið lögð fram í fjhn., þegar ég hef verið viðstaddur. Ég veik af fundi, áður en honum var lokið, og er því ekki viðriðinn það að till. var borin fram. Held ég, að ég hafi aðeins sagt, að gr. ætti betur heima í öðrum lögum.