13.04.1943
Neðri deild: 101. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. — Fjhn. hefur haldið fund um þetta frv., eins og það nú er orðið eftir afgreiðslu þess í hv. Ed. Það hafa verið samþ. nokkrar till. frá hv. fjhn. Ed. við frv., og þessar brtt. eru mönnum kunnar af þingskjölum og einnig af umr. í Ed., svo að ég geri ekki nánari grein fyrir þeim. Fjhn. þessarar hv. d. mun ekki bera fram neinar brtt. við frv. nú og gerir ráð fyrir, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það nú liggur fyrir hér í hv. d.