13.04.1943
Neðri deild: 101. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. — Ég vil aðeins leiðrétta nokkurn misskilning, sem virtist koma fram hjá hv. 2. þm. Reykv. í sambandi við raforkusjóðinn. Ég sagði í Ed. í dag, að það væri þegar búið að taka 5 millj. kr. og leggja í banka í þessu skyni, en að ég hefði von um að bráðlega mundi vera hægt að bæta öðrum 5 millj. kr. við. Mér virtist hv. 2. þm. Reykv. vilja skilja þetta svo, að nú þegar væri búið að leggja 10 millj. kr. í raforkusjóð, og vildi ég aðeins leiðrétta þann misskilning.