04.02.1943
Neðri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (1325)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Forseti (JJós):

Til mín hefur verið beint tilmælum um að taka málið af dagskrá vegna brtt., sem boðuð hefur verið. Ég sé ekki annað en hægt sé að verða við þeim tilmælum, án þess að málið þurfi að tefjast um of, og þar sem nú eru fjórir á mælendaskrá og því líkur til, að umr. mundu standa nokkuð lengi enn þá, tel ég réttara að taka málið af dagskrá þegar í stað.