16.02.1943
Neðri deild: 59. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 956 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)
115. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. — Allshn. hefur athugað þetta frv. og mælir með því, að það verði samþ. óbreytt. Það felur í sér tvær breyt. frá því sem nú er. Nú er svo ákveðið í l., að oddvitar hafi í laun 10 kr. á hvern fullan tug hreppsbúa. En með þessu frv. er gert ráð fyrir, að þeir hafi að launum 1 kr. fyrir hvern mann í hreppnum. Þetta er smábreyt., er þykir sanngjörn.
Hin breyt. er, að oddvitar fái verðlagsuppbót á laun sín. Í l. nr. 48 frá 1942 um verðlagsuppbót á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana er ekki gert ráð fyrir, að oddvitar fái uppbót á sín laun. Hefur verið álitið réttilega af stjórnarráðinu, að eftir þeim l. ættu oddvitar ekki heimtingu á að fá uppbót á sín laun. Það hefur því verið á valdi sveitarstjórnanna á hverjum stað, hvort oddvitar hafa fengið slíka launauppbót. Sumir þeirra hafa fengið hana, en aðrir ekki. Virðist ekki sanngjarnt, að oddvitum sé synjað um þau réttindi, sem flestir launamenn hafa nú. Í öðru lagi er óeðlilegt, að sums staðar sé þessi launauppbót greidd, en annars staðar ekki. Frv. fer því fram á að lögbjóða, að á laun oddvita, önnur en innheimtulaun, verði greidd verðlagsuppbót eftir vísitölu samkv. l. um verðlagsuppbót á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana, og þarf ég ekki fleiri orð um það.
Ég legg til fyrir hönd n., að frv. verði samþ. óbreytt.