24.02.1943
Neðri deild: 64. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

131. mál, útsvarsinnheimta 1943

Ingólfur Jónsson:

Þar sem hv. frsm. n. er ekki viðstaddur, er rétt, að ég segi nokkur orð í sambandi við þetta frv.

Fjhn. hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. þetta verði samþ. óbreytt, þó hefur einn hv. nm. skrifað undir nál. með fyrirvara og borið fram brtt. ásamt hv. 2. þm. S.-M. (EystJ), sem er ekki veigamikil, að mér skilst.

Ég tel ekki þörf á því að hafa mörg orð um þetta frv., en óska þess fyrir hönd meiri hl. n., að það verði samþ.