24.02.1943
Efri deild: 63. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 974 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

131. mál, útsvarsinnheimta 1943

Gísli Jónsson:

Ég get ekki látið hjá líða að lýsa því yfir, að ég mun greiða atkv. móti þessu frv. Ég tel, að Alþ. sé hér að fara inn á mjög varhugaverða braut og eigi ekki að ganga svona á rétt þegnanna sem þetta frv. ber með sér og reyndar fleiri frv., sem fram hafa komið hér á Alþ. Það virðist svo vera sem gjaldþegnarnir eigi hvergi neinn forsvarsmann, hvorki á Alþ. né annars staðar, og er það illa farið. Ég leyfi mér því fyrir hönd þúsunda þegna um allt land að mótmæla því ranglæti, sem þeir eru hér beittir og felst í frv. þessu.