12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Gísli Guðmundsson:

Það er rétt, að málið er búið að vera nokkuð lengi á döfinni, en það er ekki langt síðan umsagnir, sem n. hafði beðið um, bárust henni. Áliti meiri hl. n. var ekki útbýtt fyrr en í gær, og minnihl. álitið er í prenti. Mér finnst því eðlilegt, að málið sé ekki tekið til umr., fyrr en bæði nál. liggja fyrir. Ég vil því óska, að málið verði tekið af dagskrá.