06.02.1943
Efri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (1793)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Hermann Jónasson:

Herra forseti. —

Hv. þm. Barð. (GJ) hefur skýrt mér frá því, að samkomulag hafi orðið um að taka aftur brtt. við frv. til 3. umr. Ætla ég því ekki að orðlengja um málið nú. Og eins og málið er nú statt, álít ég illa farið, að það þarf að tefjast, svo mikil nauðsyn sem á því er að koma máli þessu fram.